Skip to main content

Innrásin í Pólland Efnisyfirlit Forsaga | Stríðið | Tækniframfarir | Tilvísanir | Heimildir | Leiðsagnarvalb

Saga PóllandsOrrustur í seinni heimsstyrjöldinni


Flag of Poland (1928–1980).svgLýðveldið PóllandFlag of Germany (1935–1945).svgÞýskalandFlag of the Soviet Union (1924–1955).svgSovétríkinSlóvakaÞjóðverjaSovétmannaPólland1. september1939seinni heimsstyrjaldarinnarJozef TisoBretarFrakkar25. ágústMolotov-Ribbentrop-sáttmálinnMolotovRibbentrop1933HitlerVersalasamningsinsfyrri heimsstyrjöldinniSaar-héraðiðRínarlöndinVínarSúdetahéruðinTékkóslóvakíuMünchenarsamninginnleifturstríðskriðdrekasprengjuflugvélarfótgönguliðflugvellibrýrjárnbrautarkerfiDanzigherskipaflugvélastórskotaliðs8. septemberVarsjáÚkraínaHvíta-RússlandLitháumVilníusMesserschmittVestur-EvrópaAustur-EvrópaNorður-AfríkaMiðjarðarhafiðAsía og KyrrahafiðAtlantshafiðþátttakendurTímaásOrsakir stríðsinsAðdragandi stríðsins í AsíuAðdragandi stríðsins í EvrópuInnrásin í KínaInnrásin í PóllandGervistríðiðVetrarstríðiðOrrustan um AtlantshafiðInnrásin í Danmörku og NoregOrrustan um FrakklandOrrustan um BretlandEyðimerkurstríðið í Lýbíu og EgyptalandiBreska SómalílandHernámið í EystrasaltsríkjunumBessarabía og BúkóvínaInnrásin í IndókínaInnrásin í GrikklandAustur-AfríkustríðiðInnrásin í JúgóslavíuInnrásin í SovétríkinStríðið í miðausturlöndumOrrustan um LeníngradÁrásin á PerluhöfnOrrustan um MidwayOrrustan um StalíngradSeinni orrustan um El AlameinTorch-áætluninOrrustan um GuadalcanalOrrustan um TúnisOrrustan um KúrskOrrustan um SalómonseyjarInnrásin í SikileyInnrásin í ÍtalíuMonte CassinoAnzioInnrásin í NormandíOrrustan um Hvíta-Rússland og ÚkraínuUppreisnin í VarsjáOrrustan um RúmeníuFrelsun ParísarInnrásin í HollandOrrustan um Leyte-flóaOrrustan um OkinawaOrrustan um BerlínStríðslok í EvrópuHiroshima og NagasakiUppgjöf JapanaAfleiðingarMannfallFólksflutningar ÞjóðverjaHernám ÞýskalandsMorgenthau-áætluninBreytt landamæriHernám JapansStríð Frakka í VíetnamKalda stríðiðSeinni heimsstyrjöldin í bókmenntum og listumÞriðja heimsstyrjöldinAndpyrnuhreyfingarArðrán nasistaÁrásir á Norður-AmeríkuDulmálsfræðiHergagnaiðnaðurHergögn í seinni heimsstyrjöldinniLeifturstríðÓtakmarkað stríðStríðsorðurTignTækninýjungarSprengjuárásir á óbreytta borgaraStríðsglæpir bandamannaStríðsglæpir ÍtalaStríðsglæpir JapanaStríðsglæpir SovétmannaStríðsglæpir ÞjóðverjaHelförinIcons-flag-mm.pngKínaIcons-flag-pl.pngPóllandIcons-flag-uk.pngBretlandBorderIndlandIcons-flag-fr.pngFrakklandIcons-flag-au.pngÁstralíaIcons-flag-nz.pngNýja SjálandBorderSuður-AfríkaBorderKanadaIcons-flag-no.pngNoregurIcons-flag-be.pngBelgíaIcons-flag-nl.pngHollandBorderGrikklandIcons-flag-cs.pngJúgóslavíaBorderSovétríkinIcons-flag-um.pngBandaríkinIcons-flag-cz.pngTékkóslóvakíaIcons-flag-mx.pngMexíkóBorderBrasilíaFlag of Italy (1861–1946).svgÍtalíaIcons-flag-td.pngRúmeníaFlag of Bulgaria.svgBúlgaríaIcons-flag-fi.pngFinnlandAðrar þjóðirIcons-flag-jp.pngJapanBorderÞýskalandBorderSlóvakíaFlag of Italy (1861–1946).svgÍtalíaBorderBúlgaríaBorderKróatíaIcons-flag-fi.pngFinnlandBorderUngverjalandBorderÍrakIcons-flag-th.pngTælandIcons-flag-it.pngRSIAðrar þjóðirLeiðtogar bandamannaLeiðtogar öxulveldannaHerforingjarAndspyrnuhreyfing gyðingaá Grikklandiá Ítalíuí Austurríkií Bessarabíuí Denmörkuí Eystrasaltslöndunumí Eþíópíuí FrakklandiÍ Hollandií Júgóslavíuí Noregií Póllandií Slóvakíuí Tékklandií Tælandií Úkraínuí Víetnamí ÞýskalandiFlokkurviðfangsefni












Innrásin í Pólland




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search








Innrásin í Pólland
Hluti af seinni heimsstyrjöldinni

The Nazi-soviet Invasion of Poland, 1939 HU106374.jpg
Þýska herskipið SMS "Schleswig-Holstein" að hjálpa Þjóðverjum í orustunni um Westerplatte






Dagsetning1. september til 6. óktober (36 dagar)
Staðsetning
Pólland
Niðurstaða
Sigur Þýskalands og Sovétríkjanna. Pólland skipt milli Þýskalands og Sovétríkjanna og Pólska ríkisstjórnin fer í útlegð.
Stríðsaðilar

Flag of Poland (1928–1980).svg Lýðveldið Pólland



  • Flag of the Czech Republic.svg Tékkóslóvaska hersveitin (1939)

Flag of Germany (1935–1945).svg Þýskaland



  • Flag of Slovakia (1939–1945).svg Slóvakía


  • Flag of the Free City of Danzig.svg Frí borgin Danzig/Gdańsk

Flag of the Soviet Union (1924–1955).svg Sovétríkin (Frá 17. september)


Organization of Ukrainian Nationalists-M.svg OUN (Frá 12. september til október)
Leiðtogar

  • Flag of Poland (1928–1980).svg Edward Śmigły-Rydz

  • Flag of Poland (1928–1980).svg Tadeusz Kutrzeba


  • Flag of Germany (1935–1945).svg Walther von Brauchitsch



  • Flag of Germany (1935–1945).svg Fedor von Bock


  • Flag of Germany (1935–1945).svg Gerd von Rundstedt


  • Flag of Slovakia (1939–1945).svg Ferdinand Čatloš

  • Flag of the Soviet Union (1924–1955).svg Semyon Timoshenko

  • Fjöldi hermanna

    Pólland: 950.000-1.000.000

    Þýskaland: ~1.800.000



    • Slóvakía: 50.000

    Sovétríkin: 617.588



    Evrópa við byrjun seinni heimsstyrjaldarinnar


    Innrásin í Pólland, einnig þekkt sem September-herferðin, var innrás Slóvaka, Þjóðverja og Sovétmanna inn í Pólland. Innrás Þjóðverja hófst 1. september 1939 og hefur sá dagur verið kallaður upphafsdagur seinni heimsstyrjaldarinnar. Þó Slóvakar séu taldir með í þessari upptalningu voru þeir í raun þýskt leppríki og forseti þeirra, Jozef Tiso, var handbendi Þjóðverja. Því þurftu Pólverjar líka að verjast við suðurlandamærin.[1] Tveimur dögum síðar, 3. september, lýstu Bretar og Frakkar yfir stríði við Þjóðverja þar sem þeir höfðu þann 25. ágúst sama ár gert bandalagssamning við Pólverja. Þessi stríðsyfirlýsing hafði þó lítil áhrif þar sem hvorki Frakkar né Bretar létu sjá sig. Rúmum mánuði seinna, þann 6. október, höfðu innrásarþjóðirnar gjörsigrað Pólland.


    Viku áður en innrásin hófst höfðu Þjóðverjar og Sovétmenn skrifað undir samning þar sem talað var um engan ófrið milli þessara landa. Samningurinn kallaðist Molotov-Ribbentrop-sáttmálinn, nefndur eftir forsætisráðherrum þjóðanna. Í þessum samningi voru leynilegar klásúlur um skiptingu allrar Austur-Evrópu milli þessara ríkja. Þegar Rauði herinn réðist inn í Pólland úr austri þann 17. september var það í samræmi við samninginn.[2] Þjóðverjar voru þá komnir í þægilega stöðu og fljótlega náðu herirnir saman í miðju Póllandi.[3]


    Síðan var hafist handa við að skipta landinu upp milli Sovétmanna og Þjóðverja. Fyrst kom bráðabirgðaskipting en þann 30. september undirrituðu forsætisráðherrar landanna, Molotov og Ribbentrop samning í Moskvu um línuna. Þá hafði landsvæði Þjóðverja stækkað mikið miðað við fyrri áætlanir. Þann 6. október hélt svo Hitler ræðu í þýska þinginu þar sem hann lýsti yfir algjörum sigri Þjóðverja í Póllandsinnrásinni.[4]




    Efnisyfirlit





    • 1 Forsaga


    • 2 Stríðið


    • 3 Tækniframfarir


    • 4 Tilvísanir


    • 5 Heimildir




    Forsaga |


    Eftir að þýski Nasistaflokkurinn komst til valda árið 1933 hóf Hitler uppbyggingu Þýskalands. Hann virti að vettugi ákvæði Versalasamningsins um stríðsskaðabætur og hætti að borga. Þess í stað notaði hann peningana í að byggja upp herafla og skapa þar með atvinnu. Hann bannaði alla stjórnmálaflokka og gerði sjálfan sig að einræðisherra. Hitler aðhylltist Stóra-Þýskalandsstefnuna og hann byrjaði strax árið 1935 að innlima héruð sem Þýskaland tapaði í fyrri heimsstyrjöldinni. Saar-héraðið var innlimað 1935 og Rínarlöndin ári seinna. Árið 1938 sendi Hitler svo skriðdreka til Vínar og ætlaði að fá Austurríkismenn í lið með sér. Hann hótaði svo að taka Súdetahéruðin af Tékkóslóvakíu. Til þess að halda friðinn var skrifað undir Münchenarsamninginn í september 1938, sem viðurkenndi rétt Þjóðverja til Súdetahéraðanna. Bretar höfðu á þessum tíma aðhyllst þá stefnu að semja við Þjóðverja til að sleppa við átök og Münchenarsamningurinn var fullkomlega í samræmi við það. Fyrri heimsstyrjöldin var enn fersk í minni Breta og þeir vildu sleppa við annað stríð í lengstu lög. Aðeins nokkrum mánuðum seinna, í september 1938, réðust Þjóðverjar inn í alla Tékkóslóvakíu og virtu þar með Münchenarsamninginn að vettugi. Svo hófu þeir að ógna Póllandi.[5]



    Stríðið |


    Þjóðverjar notuðust við hernaðaraðferð sem kallast leifturstríð. Hún byggist á því að koma óvinahernum að óvörum með snöggu áhlaupi skriðdreka og reyna að koma þeim í gegnum varnarlínu andstæðinganna. Þegar því er lokið koma sprengjuflugvélar og gera árás úr lofti. Að lokum fylgir fótgöngulið á eftir skriðdrekunum og fullkomnar innrásina.[6] Þó að frá fornu fari hafi Pólverjar verið taldir mjög góðir hermenn átti riddarahermennska þeirra ekki roð í járnskriðdreka og sprengjuflugvélar Þjóðverja.[7]


    Á einungis tveimur dögum sprengdu Þjóðverjar sig í gegnum „pólska hliðið“ til að loka á aðgengi Pólverja að sjó og algjör ringulreið greip um sig í pólska hernum sem og hjá pólskum almenningi. Á fyrsta degi innrásarinnar einbeittu Þjóðverjar sér að því að gera flugflota Pólverja óvirkan, þó að hann hafi ekki verið stór, einungis um 400 flugvélar á meðan Þjóðverjar ruddust inn með næstum 2000 flugvélar.[8][9] Þeir sprengdu því marga flugvelli og flugvélar áður en þær komust í loftið. Með þessu voru Þjóðverjar orðnir einvaldar í háloftunum strax á fyrsta degi. Þegar kom að því að fá liðsauka frá Bretum í formi flugvéla gekk það ekki sökum þess að flugvellirnir voru svo illa farnir að ekki var hægt að lenda á mörgum þeirra. Einnig þýddi það að vélarnar þurftu að fljúga yfir Þýskaland. Í framhaldi af þessu beindu Þjóðverjar sjónum sínum að samgöngukerfi Pólverja. Þeir sprengdu brýr og járnbrautarkerfi. Þá gerðu þeir einstaka loftárás á íbúðahverfi til að valda ringulreið og hræðslu hjá óbreyttum borgurum.[10] Eftir einungis um viku var allt varnarskipulag Pólverja fallið um sjálft sig og þeir lögðu á flótta. Sumir herflokkar börðust þó eins og ljón og sýndu hetjulega dirfsku. Við hafnarborgina Danzig vörðust Pólverjar árásum herskipa, flugvéla, stórskotaliðs og fótgönguliðs hetjulega í heila viku. Þann 8. september voru Þjóðverjar komnir að höfuðborginni Varsjá. Allir íbúar Varsjár einsettu sér þá að verja borgina. Konur og börn gripu til vopna til að verja sig. Í þrjár vikur var pattstaða í kringum Varsjá. Enginn hjálp barst frá Bretum né Frökkum og allir ráðamenn Pólverja flúnir.[11]


    Stuttu eftir að Sovétmenn höfðu ráðist inn í Pólland lýstu þeir því yfir að Pólland væri í raun ekki til lengur. Á svipuðum tíma náðu herir Sovétmanna og Þjóðverja saman í miðju Póllandi. Ráðamenn Sovétmanna og Þjóðverja fóru strax að ráðgera hvernig ætti að skipta Póllandi þó að setuliðið í Varsjá væri ekki búið að gefast upp. Úkraína og Hvíta-Rússland féllu undir Sovétmenn en Þjóðverjar fengu stór svæði í Norður- og Vestur-Póllandi. Rússar gáfu þó Litháum eftir sína gömlu höfuðborg Vilníus. Þann 27. september féll svo setuliðið í Varsjá og algjör sigur Þjóðverja og Sovétmanna staðreynd.[12]



    Tækniframfarir |


    Mánuðina áður en Þjóðverjar réðust inní Pólland höfðu þeir eytt gífurlegum fjármunum í uppbyggingu hersins. Það sýndi sig í innrásinni í Pólland. Pólverjar höfðu búist við því að stríðið færi fram á svipuðum grundvelli og fyrri heimsstyrjöldin. Því fór fjarri, vegna þess að Þjóðverjar beittu nú skriðdrekahernaði og sérstaklega flughernaði í mun meiri mæli en í fyrri heimsstyrjöldinni. Þegar þeir hófu innrásina í Pólland tóku þeir í notkun nýja gerð flugvéla, steypiflugvélar af gerðinni Messerschmitt, sem voru notaðar til árása á hersveitir, bílalestir og virki. Þær flugu venjulega hátt en steyptu sér svo niður og vörpuðu sprengjum á skotmarkið. Þetta höfðu Pólverjar ekki séð áður. Þeir áttu einungis 400 flugvélar og ekki nærri eins góðar og Þjóðverjar. Þeir réðust gegn þeim á gamla mátann, á hestum. Þess má nærri geta að þeir voru stráfelldir af skriðdrekum og fótgönguliði í öllum tilvikum nema í skógum og mýrlendi. Þar hafði hesturinn enn yfirhöndina.[13]


    Þjóðverjar réðust inn í Pólland með tæplega 2000 flugvélar, 2500 skriðdreka, hálfa aðra milljón hermanna og níu þúsund byssur. Pólverjar höfðu 400 flugvélar sem komu að nánast engum notum, 500 skriðdreka, eina milljón hermanna og 2800 byssur. Tæknilega séð var þetta því ójafn leikur. Sovétmenn komu svo síðar með 4700 skriðdreka, 3200 flugvélar og 620 þúsund hermenn.[14]



    Tilvísanir |




    1. Ólafur Hansson 1945: 36


    2. Berndl, Dr. Klaus 2008: 510


    3. Ólafur Hansson 1945: 39


    4. Ólafur Hansson 1945: 38-39


    5. Ganeri, Anita o.fl. 1998: 198-199


    6. Ganeri, Anita o.fl. 1998: 202


    7. Ólafur Hansson 1945: 36


    8. The Poles on the Front lines of WWII 2005


    9. Jordan og Wiest 2004: 24


    10. Ólafur Hansson 1945: 37


    11. Ólafur Hansson 1945: 38


    12. Ólafur Hansson 1945:39


    13. Ólafur Hansson 1945: 36


    14. The Poles in the front lines of WWII 2005




    Heimildir |


    • Berndl, Hattstein, Knebel og Udelhoven: 2008. Saga mannsins frá örófi fram á þennan dag. Skuggi – forlag, Reykjavík.

    • Ganeri, Williams og Martell. 1998. Saga veraldar við upphaf nýrrar aldar. Dempsey Parr, Bristol.

    • Jordan, David og Andrew Wiest. 2004. Atlas of World War II. Silverdale Books, Leicester.

    • Ólafur Hansson. 1945. Heimsstyrjöldin 1939-1945. Bókaútgáfa Menningarsjóðs Reykjavíkur, Reykjavík.

    • The Poles on the front lines of the World War II. 2005. The 1939 campaign. Sótt 20. mars af http://www.ww2.pl/The,1939,Campaign,22.html#more_photos
















    Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Innrásin_í_Pólland&oldid=1646862“













    Leiðsagnarval



























    (RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.244","walltime":"0.328","ppvisitednodes":"value":433,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":24184,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":930,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":6,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":3513,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 118.727 1 -total"," 46.63% 55.365 1 Snið:Stríðsátök"," 21.20% 25.176 1 Snið:Seinni_heimsstyrjöldin"," 12.61% 14.971 1 Snið:Reflist"," 12.37% 14.682 1 Snið:Tnavbar-collapsible"," 9.49% 11.262 1 Snið:Tnavbar"," 3.60% 4.270 9 Snið:Small"," 2.86% 3.398 25 Snið:·"," 1.01% 1.198 1 Snið:Main_other"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.014","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":766299,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1299","timestamp":"20191114191748","ttl":2592000,"transientcontent":false););"@context":"https://schema.org","@type":"Article","name":"Innru00e1sin u00ed Pu00f3lland","url":"https://is.wikipedia.org/wiki/Innr%C3%A1sin_%C3%AD_P%C3%B3lland","sameAs":"http://www.wikidata.org/entity/Q150812","mainEntity":"http://www.wikidata.org/entity/Q150812","author":"@type":"Organization","name":"Contributors to Wikimedia projects","publisher":"@type":"Organization","name":"Wikimedia Foundation, Inc.","logo":"@type":"ImageObject","url":"https://www.wikimedia.org/static/images/wmf-hor-googpub.png","datePublished":"2012-04-11T11:05:32Z","dateModified":"2019-08-24T01:16:08Z","image":"https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/1/1e/The_Nazi-soviet_Invasion_of_Poland%2C_1939_HU106374.jpg"(RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgBackendResponseTime":185,"wgHostname":"mw1269"););

    Popular posts from this blog

    Tamil (spriik) Luke uk diar | Nawigatjuun

    Align equal signs while including text over equalitiesAMS align: left aligned text/math plus multicolumn alignmentMultiple alignmentsAligning equations in multiple placesNumbering and aligning an equation with multiple columnsHow to align one equation with another multline equationUsing \ in environments inside the begintabularxNumber equations and preserving alignment of equal signsHow can I align equations to the left and to the right?Double equation alignment problem within align enviromentAligned within align: Why are they right-aligned?

    Where does the image of a data connector as a sharp metal spike originate from?Where does the concept of infected people turning into zombies only after death originate from?Where does the motif of a reanimated human head originate?Where did the notion that Dragons could speak originate?Where does the archetypal image of the 'Grey' alien come from?Where did the suffix '-Man' originate?Where does the notion of being injured or killed by an illusion originate?Where did the term “sophont” originate?Where does the trope of magic spells being driven by advanced technology originate from?Where did the term “the living impaired” originate?